Þegar nýbyggingar eru reistar er stundum eins og gleymst hafi að hugsa allt til enda og þannig er það með 19 hæða glerhýsið við Höfðatorg, Turninn.
Hann skyggir á vitann í gamla Sjómannaskólanum, þannig að vitinn er að hluta í hvarfi í Engeyjarsundi. Sjófarendur á leið inn Engeyjarsundið sjá því ekki til vitans eða þess hluta vitaljóssins sem turninn skyggir á.