Töluverðar skemmdir voru unnar á grasvellinum á Torfnesi á Ísafirði í fyrrinótt. Svo virðist sem einhver hafi gert það að leik sínum að aka inn á völlinn, væntanlega í þeim eina tilgangi að skemma hann.
Leið ökutækisins hefur legið upp fyrir Menntaskólann, yfir tjaldsvæðið ofan íþróttahússins og þaðan inn á grasvöllinn.
Þeir sem geta gefið upplýsingar um
hver var þar að verki, eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna
á Ísafirði.