Í dag var sett upp skilti á Miklubraut til að minna ökumenn á að nagladekk valda fremur svifryksmengun en önnur dekk. Skiltið virðist vera tómt, en mynd af mannslungum mun koma í ljós, þegar rykið sest á það.
Einnig eru á skiltinu tvær fullyrðingar; „Svifryk sest í lungun"og „Nagladekk eru óþörf í Reykjavík". Skiltið er hannað af Rósu Hrund Kristjánsdóttur grafískum hönnuði.
Í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að borgin muni á næstu dögum minna ökumenn á að varkárni á götum borgarinnar er meginaðferðin við keyrslu í borginni ásamt góðum naglalausum vetrardekkjum.