Skotturnar, regnhlífasamtök tuttugu íslenskra kvennasamtaka, standa í dag fyrir alþjóðlegri ráðstefnu um kynferðisofbeldi.
Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands og verndari Skottanna, setti ráðstefnuna, sem hófst klukkan tíu í morgun.
Í opnunarávarpi sínu rakti Vigdís sögu kvennafrídagsins og sagði hann sennilega hafa átt þátt í að hún sigraði forsetakosningarnar fimm árum síðar.
Vigdís hvatti viðstadda til að taka þátt í kvennafrídeginum á morgun til að undirstrika mikilvægi þess að stöðva kynbundið ofbeldi.