Bíll valt og brann á Blönduósi

mynd/Brunavarnir Austur-Húnavatnssýslu

Bíll valt skammt norðan við flugvöllinn á Blönduósi á níunda tímanum í kvöld. Í bílnum voru þrjár ungar stúlkur, engin þeirra er slösuð samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Blönduósi.

Þær hafa verið fluttar með sjúkrabíl til aðhlynningar á sjúkrahúsið á Blönduósi.

Eftir að stúlkurnar voru komnar út úr bílnum og vegfarendur höfðu komið á vettvang, kom upp eldur í bílnum. Slökkvilið staðarins kom strax á vettvang.

Afar hált er á þessum slóðum og vill lögreglan benda ökumönnum á að fara varlega.

Frá vettvangi í kvöld.
Frá vettvangi í kvöld.

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert