Jón Gnarr, borgarstjóri, er á sjúkrahúsi, samkvæmt dagbók borgarstjóra. Í færslu sem rituð er í gærkvöldi kemur fram að hann sé hálf ræfilslegur en sýkingin sé að verða búin. Eins og fram hefur komið fékk Jón Gnarr ígerð í sár við húðflúr sem hann fékk sér nýverið.
„Hálf ræfilslegur. Ligg inni á spítala.
Sýkingin er næstum búin en er með heiftarleg flekkótt útbrot og ofnæmi
um allan líkamann. Líður eins og ég hafi sólbrunnið illa. Klæjar og fæ
kuldahroll. Fæ sýklalyf, stera og ofnæmislyf í æð," skrifar Jón Gnarr.