Jón Gnarr, borgarstjóri í Reykjavík, segir í grein í bókinni Þankagangur, sem út kom árið 2005, að kristinfræði séu góð fræði og hann skilji ekki hver geti sett sig upp á móti því að kenna kristinfræði í skólum.
Hann líkir því við að setja sig upp á móti heilbrigðu mataræði.
Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, segir tillögu mannréttindaráðs borgarinnar vega að rótum trúar, siðar og hefðar.