Níutíu ára gamall ferðamaður hrasaði í síðustu viku við Gullfoss um helgina. Hann úlnliðsbrotnaði og skrámaðist illa á andliti. Að sögn lögreglunnar á Selfossi maðurinn fluttur með sjúkrabíl til aðhlynningar á slysadeild Landspítala.
Þá handleggsbrotnaði ungur drengur þegar hann féll af torfæruhjóli í keppni sem fram fór á keppnissvæði við Þorlákshöfn. Sjúkraflutningamenn á sjúkrabíl voru á staðnum, sem var liður í öryggismálum keppninnar. Þeir hlúðu að dregnum og fluttu á slysadeild Landspítala.