Tvær bílveltur urðu með um eins og hálfs tíma millibili í kvöld í umdæmi lögreglunnar á Selfossi.
Annar bíllinn valt í Þrengslunum þegar klukkan var rétt fyrir klukkan hálf átta og hinn valt á Lyngdalsheiðarvegi þegar klukkuna vantaði 15 mínútur í níu.
Enginn slasaðist í bílveltunum, en báðir bílarnir eru mikið skemmdir.
Lögreglan á Selfossi varar ökumenn við fljúgandi hálku á Hellisheiði, Þrengslunum og í uppsveitum.