Tæplega eitt þúsund umsóknir hafa borist um störf flugliða hjá Iceland Express fyrir næsta sumar, en störfin voru auglýst fyrir rúmri viku. Umsóknarfresturinn rann út í gær, mánudag, en sökum mikils áhuga hefur verið ákveðið að framlengja frestinn um viku eða fram til þriðjudagsins í næstu viku, 2. nóvember.
Fyrirhugað er að atvinnuviðtöl fari fari fram fljótlega eftir að umsóknarfrestur rennur út og vegna fjölda umsókna af Norðurlandi munu atvinnuviðtöl verða tekin bæði á Akureyri og í Reykjavík, segir í fréttatilkynningu.