Samþykkt var á landsþingi Landssambands hestamannafélaga, að halda landsmót á Vindheimamelum í Skagafirði dagana 26. júní til 3. júlí næsta sumar. Halda átti landsmót á Vindheimamelum í sumar en því var frestað vegna kvefpestar í hrossum.
Á landsþinginu var einnig ákveðið hvar næstu Íslandsmót, yngri flokka og fullorðinna, færu fram. Íslandsmót fullorðinna 2011 verður haldið af hestamannafélaginu Sleipni á Selfossi og Íslandsmót yngri flokka verður á vegum hestamannafélagsins Mána í Keflavík.
Íslandsmót fullorðinna 2012 verður haldið sameiginlega af hestamannafélögunum Stíganda, Svaða og Léttfeta á Vindheimamelum. Íslandsmót yngri flokka 2012 verður haldið af hestamannafélaginu Geysi á Hellu.