Innflutningur á nautakjöti fyrstu átta mánuði ársins var 27% meiri en á síðasta ári. Heildarinnflutningur á kjöti til ágústloka var hins vegar 2% minni en á sama tíma árið 2009. Alls hafa 95 tonn af nautakjöti verið flutt
Þetta kemur fram á vef Landssbamands kúabænda.
„Samkvæmt upplýsingum frá Landssamtökum Sláturleyfishafa hefur innflutningur á nautakjöti til og með ágúst á þessu ári numið 95 tonnum, en á sama tíma árið 2009 var innflutningur nautakjöts kominn í 74 tonn. Er þetta aukning um 27% á milli ára. Innflutta nautakjötið samanstendur af lundum, fillé og hakkefni. Naut.is er ekki kunnugt um hvar þessi 95 tonn hafa verið boðin til sölu.
Ef horft er til heildarinnflutnings á kjöti til landsins þá
var hann kominn í 415 tonn í lok águst sem er minnkun um 2% frá fyrra ári. Af heildarmagninu vegur innflutningur á alífuglakjöti þyngst eða sem nemur 52%. Hlutfall hins innflutta nautakjöts af heildinni er hinsvegar 23%.“