Skrifstofa Alþingis endurskoði verklag við innkaup

Ríkisendurskoðun hvetur skrifstofu Alþingis til að endurskoða verklag sitt við verðfyrirspurnir og útboð. Í lok árs óskaði skrifstofa þingsins eftir tilboðum frá tveimur fyrirtækjum í tækjaþjónustu á þingi Norðurlandaráðs, sem fer fram í Reykjavík í næsta mánuði. Ríkisendurskoðun segir að það hefði átt að bjóða þjónustuna út.

Alþingi sér um framkvæmd Norðurlandaráðsþingsins og óskaði eftir tilboðum frá Exton og Sense. Ákveðið var að ganga til samninga við Sense sem bauð umtalsvert lægra verð.  Exton taldi að bjóða hefði átt verkefnið út samkvæmt lögum um opinber innkaup og vakti athygli Ríkisendurskoðunar á málinu, að því er segir á vef stofnunarinnar.

Þar segir að það sé niðurstaða Ríkisendurskoðunar að bjóða hefði átt þjónustuna út enda fjárhagslegt umfang hennar augljóslega yfir mörkum útboðsskyldu. Samkvæmt lögum um opinber innkaup beri að bjóða út kaup á þjónustu ef verðmæti hennar er 12,4 milljónir króna eða meira. Tilboð Sense hljóðaði upp á 19,8 milljónir króna.

Þá segir að skrifstofa Alþingis telji að ekki hafi þurft að bjóða út þjónustuna þar sem Norðurlandaráð greiði meirihluta kostnaðar við hana. Á móti bendi Ríkisendurskoðun á að bæði íslenska ríkið og Norðurlandaráð þurfi að hlíta sömu reglum um opinber innkaup, auk þess sem skrifstofa Alþingis sé greiðandi reikninga vegna þjónustunnar.

Vegna þessa máls telur Ríkisendurskoðun að skrifstofa Alþingis þurfi að taka verklag við útboð og verðfyrir­spurnir til endurskoðunar.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert