Borgarstjóri að ná heilsu

Jón Gnarr sýnir húðflúrið margumrædda. Myndin er tekin af Dagbók …
Jón Gnarr sýnir húðflúrið margumrædda. Myndin er tekin af Dagbók borgarstjóra.

Borgarstjóri Reykjavíkur, Jón Gnarr, er að komast til heilsu á ný eftir að hafa verið lagðir inn á sjúkrahúss vegna sýklalyfjaofnæmis. Að sögn aðstoðarmanns borgarstjóra, S. Björns Blöndal, mun Jón mæta á einn fund í dag og annan á morgun. Á mánudag mun hann hins vegar sinna öllum verkefnum borgarstjóra.

Líkt og greint hefur verið frá fékk Jón sýkingu í sár sem hann fékk rétt hjá húðflúri sem hann fékk nýverið. Klæjaði hann skelfilega í húðflúrið og klóraði sér til blóðs. Fór ekki betur en sýking komst í eitt sárið og var hann settur á sýklalyf. Reyndist hann hins vegar vera með ofnæmi fyrir þeim og endaði á sjúkrahúsi um síðustu helgi. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert