Laga þarf stjórn- og dómskerfi Íslands að regluverki Evrópusambandsins áður en aðild kemur til greina og mun hraði aðildarviðræðna ráðast af því „hve vel Íslandi tekst að uppfylla kröfur vegna aðildar“.
Þetta kemur fram í greinargerð ríkjaráðstefnu aðildarríkja Evrópusambandsins í júlí sl. í tilefni af opnun viðræðna um hugsanlega aðild Íslands að sambandinu, en fjallað er um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.
Um hinar efnahagslegu forsendur EvrópusambandsaðildarÞá kemur fram í greinargerðinni að „Ísland [skuli] taka upp evru sem innlendan gjaldmiðil í kjölfar ákvörðunar [leiðtoga]ráðsins þar að lútandi á grundvelli mats á því hvort það uppfylli nauðsynleg skilyrði“.