Öllu starfsfólki fiskvinnslufyrirtækisins Eyrarodda hf., á Flateyri var sagt upp störfum í dag. Um er að ræða 42 starfsmenn. Uppsagnirnar taka gildi nú um mánaðamótin. Ástæða uppsagnanna er fyrst og fremst viðvarandi hráefnisskortur og erfiðleikar í rekstri sem af þeim skorti leiðir, að því er segir í tilkynningu frá fyrirtækinu.
„Eyraroddi hf.,
óskaði eftir greiðslustöðvun í maí á þessu ári og gildir sú heimild til
21. nóvember nk. Á því tímabili hafa forsvarsmenn félagsins leitað leiða
til að styrkja og tryggja rekstrargrundvöll félagsins. Þær aðgerðir
hafa ekki gengið sem skyldi og er uppsögn allra starfsmanna
fyrirtækisins á þessum tímapunkti óumflýjanleg,“ segir í tilkynningunni.
Áfram verður unnið að úrlausn mála fyrirtækisins í samráði við
kröfuhafa þess. Komi til þess að ástæður breytist til hins bestra á
næstunni, verður leitað allra leiða til að draga uppsagnirnar til baka.