Skilorðsbundið fangelsi fyrir fíkniefnasmygl

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt rúmlega fertuga konu í 4 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að flytja til landsins með flugi frá Hollandi 30 stykki af LSD, rúm 46 grömm af kókaíni, rúm 39 grömm af e-töfludufti, eina e-töflu og 47 grömm af hassi. Konan faldi þessi fíkniefni innvortis.

Við rannsókn málsins var einnig lagt hald á meira af fíkniefnum og 15 viagratöflur, sem konan hafði í fórum sínum.

Fram kemur í dómnum, að konan hafi ekki sakarferil að baki sem skipti máli. Þá hafi hún sótt sér meðferðarúrræði á vegum SÁÁ. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert