Hvalur hf. hefur flutt 5-600 tonn af hvalkjöti til Japans á þessu ári, að sögn japönsku fréttastofunnar Kyodo. Samkvæmt upplýsingum frá japanska fjármálaráðuneytinu hafa 164,1 tonn af langreyðakjöti verið afgreidd úr tolli inn í landið en afgangurinn er enn í tollameðferð.
Kyodo segir, að um 4 þúsund tonn af hvalkjöti, aðallega hrefnu, séu sett árlega þar á markað en framboðið sé meira en eftirspurn. Ljóst sé að langreyðakjötið muni hafa áhrif á verð á hvalkjöti.
Haft er eftir Kristjáni Loftssyni, forstjóra Hvals hf., að markmiðið sé ekki að ýta hrefnukjöti út af markaði í Japan heldur geti þessi innflutningur haft góð áhrif.
Hvalur hf. flutti 66,6 tonn af langreyðakjöti til Japans í tilraunaskyni árið 2008 og var það í fyrsta skipti í 17 ár sem hvalkjöt var sent til Japans. Skip félagsins veiddu 148 langreyðar á þessu ári. Ráða má af vef Hagstofunnar, að útflutningsverðmæti hvalkjötsins, sem sent var til Japans á þessu ári, nemi um 1,1 milljarði króna.