Það var mikið að gera hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Tilkynnt var um fimm líkamsárásir og fjórir voru teknir ölvaðir við akstur.
Mjög margt fólki var á ferli í miðborginni og mikil ölvun. Að sögn lögreglu fylgja slíkri ölvun mörg útköll af ýmsu tagi. Mikið var um pústra og fleira sem kallaði á mikla vinnu af hálfu lögreglumanna.