Áhorf á sjónvarpsstöðina ÍNN hefur aukist í haust og og síðustu vikuna í október horfðu 32,5% eitthvað á útsendingar stöðvarinnar samkvæmt niðurstöðum Capacent. Þetta hlutfall var 24,4% í mars.
Um var að ræða netkönnun, sem gerð var 21. til 28. október. Úrtakið var 1185 manns á öllu landinu en 763 svöruðu, sem er 64,4% úrtak.