Í lok október var búið að selja 360 fasteignir nauðungarsölu hjá sýslumanninum í Reykjavík á árinu, flestar í september, 74 og október 81. Allt árið í fyrra voru 207 fasteignir seldar nauðungarsölu hjá sýslumanninum í Reykjavík.
Skráð nauðungarsölumál vegna fasteigna voru á fyrstu tíu mánuðum ársins 1.630 talsins.Skráð nauðungarsölumál vegna fasteigna voru árið 2009 2.504 talsins, samkvæmt vef sýslumannsins.