Ítreka bann við utanvegaakstri í Bláfjöllum

Frá Bláfjöllum
Frá Bláfjöllum mbl.is/Rax

Starfsmenn skíðasvæðis höfuðborgarsvæðisins beina þeim tilmælum til ökumanna að virða bann við utanvegaakstri í Bláfjöllum en þar hefur aðeins snjóað að undanförnu þó enn vanti töluvert upp á að hægt sé að fara þar á skíði.

 Á göngusvæðinu fer að verða mögulegt að leggja spor, einkum á sléttunni við Suðurgil.

„Borið hefur á því að ökumenn geri sér að leik að aka upp í skíðabrekkur og í síðustu viku var einnig ekið um göngusvæðið og snjórinn spændur upp sem útilokaði að hægt var að nýta til skíðagöngu þann litla snjó sem var kominn. Þeim tilmælum er eindregið beint til allra ökumanna að virða bann við akstri utan vega og bílastæða í Bláfjöllum," segir í tilkynningu frá starfsmönnum í Bláfjöllum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert