Þjóðfundur á laugardag

Frá þjóðfundi í Laugardalshöll í fyrra.
Frá þjóðfundi í Laugardalshöll í fyrra. mbl.is/ Kristinn

Þjóðfundur um stjórnarskrá Íslands verður haldinn á laugardaginn í
Laugardalshöll. Um 1000 þáttakendur eru skráðir á fundinn en þeir voru valdir með slembiúrtaki úr þjóðskrá. Hlutverk þeirra er að tjá hugmyndir sínar og skoðanir um stjórnskipan landsins og stjórnarskrá og endurskoðun á henni.

Samkvæmt upplýsingum frá skipuleggjendum þjóðfundarins hefur fjöldi þátttakendanna þegar lesið stjórnarskrána sem þeir fengu nýlega senda í pósti. Kynjaskipting þátttakenda er nánast jöfn og dreifingin þeirra er nokkuð í samræmi við aldurs- og búsetudreifingu þjóðarinnar.  Elsti þátttakandi á þjóðfundi er 89 ára, sá yngsti verður 18 ára nokkrum dögum fyrir kosningar til stjórnlagaþings, nokkur pör eða hjón voru boðuð fyrir tilviljun til fundarins og nýbökuð móðir hefur tilkynnt komu sína en fær ungbarnið til sín í hléum á fundinum til að gefa því að drekka.

Tæplega tvö hundruð manns koma að fundinum með einum eða öðrum hætti. Verið er að ljúka þjálfun 128 lóðsa eða borðstjóra en hlutverk þeirra er að leiða umræður á fundinum, tryggja að þátttakendur hafi jöfn tækifæri til að tjá sig
og koma hugmyndum þeirra í réttan farveg.

Fyrstu fréttir af Þjóðfundi 2010 og viðfangsefni hans eru væntanlegar strax um hádegisbil á laugardeginum. Á laugardagskvöldið, eftir fundinn, verður unnið úr  niðurstöðum hans með það í huga að geta kynnt fyrstu niðurstöður á sunnudag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert