Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagði á Alþingi í dag að ein þeirra leiða, sem verið væri að skoða til að taka á skuldavanda væri að lengja lán heimilanna og draga þannig tímabundið úr greiðslubyrði.
Bjarni Benediktsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spurði Jóhönnu í upphafi þingfundar til
hvaða úrræða ríkisstjórnin ætlaði að grípa í þessum efnum.
Fram kom hjá Jóhönnu, að til standi á mánudag að kynna fyrir fulltrúum stjórnarandstöðunnar skýrslu um þau úrræði sem fjallað hefur verið um að undanförnu. Um væri að ræða 9 megintillögur, sem hafa verið reiknaðar út.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þingmaður Framsóknarflokks, spurði hvort ríkisstjórnin væri reiðubúin að breyta um stefnu í atvinnumálum og sagði að ella væri svokallað samráð við stjórnarandstöðuna þýðingarlaust.