Dagfinnur Stefánsson, sem var flugmaður á Geysi sem fórst á Bárðarbungu árið 1950, keypti fyrsta Neyðarkall björgunarsveita í dag. Þar með hófst formlega þessi árlega fjáröflun björgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
Dagfinnur sagði við þetta tækifæri að þeir björgunarmenn sem fyrstir komu að flugvélinni á Bárðarbungu hafi skilað sínu hlutverki vel en ljóst sé að björgunarsveitir í dag séu mun betur í stakk búnar til að takast á við stór verkefni, eins og flugslys eða náttúruhamfarir.
Magnús Hallgrímsson og Guttormur Þórarinsson sáu um sölu Neyðarkallsins til Dagfinns en Magnús er einn af stofnendum Flugbjörgunarsveitarinnar á Akureyri sem var ein af fjölmörgum sveitum er stofnaðar voru í kjölfar Geysisslyssins og faðir Guttorms var í fyrsta björgunarhópnum sem kom að flakinu.
Sjálfboðaliðar Slysavarnafélagsins Landsbjargar munu selja Neyðarkall um land allt um helgina. Verða þeir við verslanir, verslanamiðstöðvar, útsölustaði ÁTVR og víðar. Einnig verður á sumum stöðum gengið í hús.
Sala Neyðarkalls er með stærstu fjáröflunum björgunarsveita og afar mikilvæg fyrir starfsemi þeirra, ekki síst í ár en sjaldan hafa björgunarsveitir landsins tekist á við jafn stór og viðamikil verkefni. Er þar skemmst að minnast ferðar Íslensku alþjóðabjörgunarsveitarinnar til Haítí í janúar og umfangsmiklar aðgerðir í kringum eldgos á Fimmvörðuhálsi og í Eyjafjallajökli.