Samkomulag um framtíð Sólheima nauðsynlegt

Sólheimar í Grímsnesi.
Sólheimar í Grímsnesi. mbl.is

Framkvæmdastjórn Sólheima í Grímsnesi ítrekar að brostinn grundvöllur sé fyrir starfi Sólheima, verði fyrirhugaðar breytingar á lögum um málefni fatlaðra samþykktar, nema því aðeins að ríkið tryggi þjónustu Sólheima til ársins 2014. Stjórnin segir nauðsynlegt að slíkt samkomulag liggi fyrir eigi síðar en 1. desember næstkomandi.

„Að sama skapi er nauðsynlegt að slíkt samkomulag grundvallist á mati á kostnaði og þjónustuþörf fatlaðra íbúa Sólheima. Því miður hefur slíkt þjónustumat ekki verið framkvæmt  í átta ár, þó svo að lögbundið sé að það fari fram árlega," segir í yfirlýsingu frá framkvæmdastjórn Sólheima.
 
Enn fremur segir að fullyrðingar ráðuneytisins, um að forsvarsmenn Sólheima hafi neitað að framlengja eða gera nýjan þjónustusamning við ráðuneytið, séu ekki réttar. „Með bréfi dagsettu 30. apríl 2008 bauðst framkvæmdastjórn Sólheima til að framlengja gildandi þjónustusamning við ráðuneytið. Erindi Sólheima var ekki svarað fyrr en eftir 13 mánuði en þá hafi ráðuneytið í millitíðinni einhliða staðið fyrir skerðingu á fjárframlögum til Sólheima á fjárlögum fyrir árið 2009. Voru Sólheimar eini þjónustuveitandi fatlaðra í búsetu og atvinnumálum sem þá þurfti að sæta skerðingu á fjárveitingum. Vegna þessa gjörnings sáu Sólheimar sig knúna til að stefna íslenska ríkinu," segir í yfirlýsingunni.

„Engu að síður áttu fulltrúar Sólheima í viðræðum við ráðuneytið um framlengingu eða nýjan þjónustusamning. Ráðuneytið sleit þeim viðræðum og tilkynnti að ekki yrðu frekari viðræður um þjónustusamning fyrr en að Ríkisendurskoðun hefði lokið úttekt á málaflokki fatlaðra. Ákvörðun ráðuneytisins var fyrirsláttur  þar sem úttektin náði ekki til starfssemi Sólheima, eins og sjá má í ný birtri skýrslu Ríkisendurskoðunar.

Fulltrúar ráðuneytisins áttu viðræður við sveitarstjórnarmenn í Grímsnes- og Grafningshreppi. Á þeim fundi kom fram að fulltrúar ráðuneytisins töldu litlar líkur á að gerður yrði þjónustusamningur við Sólheima og sveitarfélagið yrði ekki skuldbundið til þess að gera slíkan samning um aldur og ævi. Þrátt fyrir að Sólheimar séu einn stærsti þjónustuveitandi fatlaðs fólks hefur ráðuneytið ekkert samstarf né samráð haft við framkvæmdastjórn eða fulltrúaráð Sólheima um fyrirhugaðar breytingar. Fullyrðingar um annað eru ekki réttar.
 
Framkvæmdastjórn Sólheima lýsir yfir fyllsta trausti á málflutningi framkvæmdastjóra Sólheima og krefst þess að félagsmálaráðherra fari að lögum og  bregðist málefnalega við samþykkt fulltrúaráðs Sólheima frá 26. október og erindi framkvæmdastjórnar til ráðherra frá 2. nóvember með hagsmuni fatlaðra íbúa  að leiðarljósi.“
 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert