Óska eftir samstarfi í heilbrigðisnefnd

mbl.is/Þorkell

Guðlaugur Þór Þórðarson og Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingmenn Sjálfstæðisflokksins, segja mikilvægt að vinna við gerð fjárlagafrumvarpsins skaði íslenska heilbrigðisþjónustu sem minnst. Þau leggja til að heilbrigðisnefnd Alþingis, sem þau eiga sæti í, leggi alla sína krafta til að vinna að frumvarpinu.

Markmiðið sé að halda uppi þjónustustiginu fyrir alla landsmenn. Heilbrigðisþjónustan sé á heimsmælikvarða og það sé algjört forgangsmál að svo verði áfram.

„Undanfarin tvö ár hafa ekki verið nýtt til að undirbúa okkur undir hið óhjákvæmilega. Þess í stað var öll vinnan sem unnin var í tíð ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar lögð á hilluna. Vinnuhópar sem í voru um 100 sérfræðingar allsstaðar af landinu og höfðu það markmið að endur skipuleggja þjónustuna voru leystir upp og almenningi og heilbrigðisstarfsfólki lofað að ekki kæmi til niðurskurðar,“ segja þingmennirnir í tilkynningu.

Þá er lagt til að heilbrigðisnefndin fái á sinn fund forsvarsmenn heilbrigðisstofnana, fagfélaga, sjúklingasamtaka, landlæknis og aðra þá aðila sem hagsmuni hafa að gæta. Nefndin fari sömuleiðis yfir þær úttektir og skýrslur sem liggi í ráðuneytinu og tengis skipulagsbreytingum í heilbrigðisþjónustunni og rekstri heilbrigðisstofnana.

Nefndin muni þannig vinna þétt með fjárlaganefndinni að heilbrigðisþætti fjárlaga. Nefndirnar muni einnig í samvinnu við ráðuneytið kalla saman hópa sérfræðinga til að vinna að ákveðnum útfærslum fjárlaga. Það er vænlegasta leiðin til að ná árangri og sátt í málaflokknum.




mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert