Rafmagnslaust er víða í Keflavík þessa stundina. Rafmagn sló út vegna bruna í háspennustreng í dreifistöð um klukkan 13:30 í dag. Rafmagni hefur verið komið aftur á alls staðar nema á þeim stöðum sem tengjast viðkomandi dreifistöð.
Viðgerð stendur nú yfir, og er vonast til þess að henni verði lokið fyrir klukkan 20 í kvöld.