Heilbrigðisráðuneytið áætlar, að gangi þær niðurskurðartillögur eftir, sem fram koma í fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár, megi ætla að starfsmönnum í heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni fækki um
samtals 456 einstaklinga verði ekki breytingar á frumvarpinu í meðförum
þingsins.
Af þeim fjölda megi gera ráð fyrir að 369 einstaklingar séu konur. Á höfuðborgarsvæðinu gætu 178 misst vinnuna og samtals er því um að ræða 634 starfsmenn í 445 stöðugildum.
Þetta kemur fram í svari Guðbjarts Hannessonar, heilbrigðisráðherra, við fyrirspurn Gunnars Braga Sveinssonar, þingmanns Framsóknarflokksins, á Alþingi.
Í svarinu segir, að fjárlagafrumvarpið geri ráð fyrir því að styrkja starf heilsugæslunnar með auknum fjárveitingum, einkum til sjúkraflutninga, sálfélagslegrar þjónustu við börn og ungmenni og heimahjúkrunar. Auknum fjárveitingum fylgi störf og sé reiknað með fjölgun starfa fyrir allt að 63 einstaklinga. Þannig gæti frumvarpið falið í sér fækkun starfsmanna um 393 einstaklinga þegar tekið hefur verið tillit til þessa.
Fram kemur í svarinu að fækka myndi um 96 starfsmenn á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði, 68 á Landspítala, 15 í heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu, 78 starfsmenn í á Heilbrigðisstofnunum Austurlands og Suðurnesja, 67 á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga, 63 á Heilbrigðisstofnun Suðurlands, 43 á Heilbrigðistofnun Sauðárkróks, 30 á Vestfjörðum, 29 í Vestmannaeyjum, 26 á Vesturlandi, 17 í Fjallabyggð, 11 á Blönduósi, 5 á Patreksfirði.