Ógnar öryggi barnshafandi kvenna

Fagráðið segir að rannsóknir sýni að nærvera og samfelld þjónusta …
Fagráðið segir að rannsóknir sýni að nærvera og samfelld þjónusta sömu fagaðila hafi jákvæð áhrif á öryggi og útkomu fæðingarhjálpar. Myndin er úr myndasafni. mbl.is/Golli

Fagráð ljósmæðra á Landspítala lýsir áhyggjum yfir þróun mála í barneignarþjónustu og kallar eftir heildstæðri stefnumótun frá heilbrigðisyfirvöldum áður en ráðist er í boðaðan niðurskurð í heilbrigðisþjónustunni sem skilar ekki raunverulegum sparnaði.

Þá segir fagráðið að yfirvofandi fækkun fæðingarstaða og skerðing á sólarhringsþjónustu ógni öryggi barnshafandi kvenna.

Þetta kemur fram í ályktun sem var samþykkt á fundi ráðsins fyrir helgi. Hún er svohljóðandi:

„Þegar hagræða á í heilbrigðisþjónustunni  er nauðsynlegt að hafa samráð við þær fagstéttir sem þjónustuna veita og gera ítarlega kostnaðar- og þarfagreiningu m.t.t. hagkvæmni þjónustunnar og öryggis skjólstæðinga. Fagráð ljósmæðra á Landspítala lýsir áhyggjum sínum yfir þróun mála í barneignarþjónustu og kallar eftir heildstæðri stefnumótun frá heilbrigðisyfirvöldum áður en ráðist er í breytingar sem ekki skila raunverulegum sparnaði.

Yfirvofandi fækkun fæðingarstaða á Íslandi, skerðing á sólarhringsþjónustu ljósmóður á landsbyggðinni með tilheyrandi röskun og óhagræði fyrir barnshafandi konur og fjölskyldur ógnar öryggi þeirra.

Rannsóknir sýna að nærvera og samfelld þjónusta sömu fagaðila hefur jákvæð áhrif á öryggi og útkomu fæðingarhjálpar. Skoðanir og fræðsla í meðgönguvernd, yfirseta í fæðingu og samfelld heimaþjónusta sömu ljósmæðra í sængurlegu eru dæmi um persónubundna þjónustu sem hefur hagkvæm áhrif, fylgikvillum, inngripum og óþarfa innlögnum á sjúkrahús fækkar. Skipulagsbreytingar þar sem þetta er haft í huga stuðla að sparnaði í heilbrigðiskerfinu þegar til lengri tíma er litið.

Fagráð ljósmæðra á Landspítala ítrekar mikilvægi samræmingar og samvinnu milli heilbrigðisstofnana og stjórnvalda um barneignarþjónustu á mismunandi þjónustustigi í þágu barnshafandi kvenna og samfélagsins alls.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert