Ríkisstjórnin hefur boðað til blaðamannafundar að loknum ríkisstjórnarfundi á morgun, en hann mun að þessu sinni fara fram í Víkingaheimum í Reykjanesbæ. Áætlað er að fundurinn hefjist um kl. 11:30.
Áður en ríkisstjórnarfundurinn hefst mun ríkisstjórnin eiga fund með bæjar- og sveitarstjórum á Suðurnesjum þar sem málefni Suðurnesja verða til umræðu sem og leiðir til að efla atvinnu og byggð á svæðinu.