Þingmenn gagnrýna sölu á Vestia

Vodafone er meðal fyrirtækja, sem fylgdu með þegar Framtakssjóðurinn keypti …
Vodafone er meðal fyrirtækja, sem fylgdu með þegar Framtakssjóðurinn keypti Vestia. mbl.is/Golli

Margir þingmenn gagnrýndu á Alþingi í dag sölu Landsbankans á eignarhaldsfélaginu Vestia til Framtakssjóðs lífeyrissjóðanna í sumar. Fullyrt var að verklagsreglur Landsbankans hefðu verið brotnar við söluna og allir, sem komu að málinu, hefðu brugðist. Fjármálaráðherra sagði hins vegar að engar reglur hefðu verið brotnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert