Stuðningur hefur aukist við svonefnda samningaleið í sjávarútvegi, að því er kemur fram í nýrri könnun, sem MMR hefur gert fyrir Landssamband íslenskra útvegsmanna.
Fram kemur á heimasíðu LÍÚ, að samkvæmt könnun, sem gerð var 3.-5. nóvemebr séu 57,4% kjósenda fylgjandi þessari leið. Í sambærilegri könnun sem unnin var í byrjun október mældist fylgi við samningaleiðina 51,7%.
Spurningin sem lögð var fyrir þátttakendur hljóðaði þannig: „Meirihluti starfshóps, sem sjávarútvegsráðherra skipaði til þess að endurskoða lög um stjórn fiskveiða, lagði í byrjun september 2010 til að farin yrði svokölluð samningaleið í sjávarútvegi. Samningaleiðin byggir á því að ríkið geri samninga við núverandi handhafa fiskveiðiheimilda um veiðiheimildir gegn gjaldi. Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því að þessi leið verði farin?"
Alls sögðust 57,4% vera mjög eða frekar hlynntir þessari leið en 42,6% sögðust mjög eða frekar andvíg því að hún væri farin. Svör fengust frá 813 manns en 40% svarenda tóku ekki afstöðu til spurningarinnar. Það er nánast sama hlutfall og í fyrri könnuninni.