Nýr Porsche 911 GT2 RS er kominn til landsins og verður sýndur hér næstu þrjá daga. Þetta er 161. bíllinn af 500 framleiddum eintökum af aflmesta götubíl sem Porsche hefur framleitt frá upphafi.
Mbl sjónvarp kíkti á gripinn í morgun en frekar verður fjallað um bílinn í Finni á morgun.