Um 200 börn og unglingar voru við æfingar í Bláfjöllum í gærkvöldi og drógu hvergi af sér í blankalogni og fallegu veðri.
Stefnt er að því að opna stólalyftur og barnalyftu í dag, en enn vantar þó snjó í Gilið. Það var fjarri fólkinu í brekkunum að leiða hugann að lokun skíðasvæðisins í tvö ár, en fjallað er um málefni skíðasvæðisins í Morgunblaðinu í dag.