Engiferdrykkurinn Aada frá My Secret hefur verið innkallaður af markaði vegna heilsufullyrðinga. Á umbúðum koma fram eftirfarandi heilsufullyrðingar: Hollur orkudrykkur, vatnslosandi, vörn gegn ýmsum kvillum, eykur skerpu og athygli.
Á vef Matvælastofnunar er vísað í ýmsar reglugerðir, þar á meðal reglugerð um merkingu matvæla þar sem stendur m.a: Óheimilt er að eigna matvælum þá eiginleika að fyrirbyggja eða vinna á sjúkdómum manna, hafa lækningarmátt eða að vísa til þess háttar eiginleika.