Tilkynnt var um reyk úr húsinu við Laugaveg 40 í Reykjavíkur nú á tíunda tímanum í kvöld. Hefur allt tiltækt lið Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins verið sent á staðinn.
Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu leggur reyk frá þaki hússins en slökkviliðsmönnum hefur ekki enn tekist að finna hvaðan hann kemur.
Slökkviliðsmenn eru í tveimur körfubílum að leita að upptökum eldsins. Allt bendir til þess að eldurinn sé í risi hússins eða þaki.
Húsin á Laugavegi 38, 40, 40a og 42 eru sambyggð. Þar eru meðal annars veitingastaður, verslanir og íbúðir.