Ekki liggur fyrir til hvaða ráðstafana verður gripið vegna skuldavanda heimilanna, en Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði nú fyrir helgi að hugsanlega yrði greint frá stöðu mála í byrjun þessarar viku.
Að sögn Rósu Bjarkar Brynjólfsdóttur, upplýsingafulltrúa fjármálaráðuneytisins, er enn gert ráð fyrir að ríkisstjórnin láti í sér heyra varðandi málið á næstu dögum.