Vigdís Finnbogadóttur, fyrrverandi forseti Íslands, hlaut í dag verðlaun Jónasar Hallgrímssonar en þau eru veitt árlega á degi íslenskrar tungu.
Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, afhenti Vigdísi verðlaunin á hátíðardagskrá í landnámssetrinu í Borgarnesi. Auk þess voru veittar tvær sérstakar viðurkenningar fyrir störf í þágu íslenskrar tungu. Þær hlutu Möguleikhúsið og hljómsveitin Hjálmar.
Í rökstuðningi ráðgjafarnefndar um verðlaun Jónasar Hallgrímssonar er vísað til þess, að í reglum um verðlaunin segi, að þau beri að veita einstaklingum er hafa unnið íslenskri tungu gagn „með sérstökum hætti.” Þetta eigi sannarlega við um Vigdísi Finnbogadóttur fyrrverandi kennara, leikhúsmann og forseta Íslands.
Segir nefndin m.a. að Vigdís hafi í starfi sínu sem forseti verið óþreytandi að benda á gildi íslenskrar tungu fyrir mannlífið í þessu landi. Eftir að hún lét af embætti forseta Íslands hafi hún haldið áfram að boða þennan sannleik og
fengið góðan hljómgrunn enda sé hún á vegum Sameinuðu þjóðanna sérstakur verndari þjóðtungna sem eiga í vök að verjast.
Vigdís Finnbogadóttir hlaut í verðlaun 700 þúsund krónur og ritið Íslenska tungu sem er í þremur bindum. Íslandsbanki og mennta- og menningarmálaráðuneyti leggja til verðlaunin.
Í greinargerð með viðurkenningu til Möguleikhússins segir, að leikhúsið hafi starfað sem atvinnuleikhús með megináherslu á leiksýningar fyrir börn og unglinga. Undanfarin misseri, eftir að opinber stuðningur við leikhúsið féll niður, hafi það alfarið snúið sér að farandsýningum og tekist að halda þeim gangandi með þrautseigju og útsjónarsemi. Á þessum tuttugu árum hafi Möguleikhúsið sýnt á fjórða tug frumsaminna leikverka sem langflest byggi á efni úr íslenskum bókmenntum, þjóðsögum og þjóðtrú. Leikhúsið hafi því átt drjúgan þátt í að kynna menningararfinn á frjóan og skemmtilegan hátt fyrir yngstu kynslóð leikhúsgesta og stuðlað þannig að verndun og varðveislu íslenskrar tungu og skapað henni sóknarfæri.
Um hljómsveitina Hjálma, segir, að sveitin hafi verið stofnuð í Keflavík 2004 og frá upphafi lagt áherslu á íslenskt afbrigði af reggí-tónlist, svokallað lopapeysu-reggí. Hljómsveitin hafi starfað síðan, með nokkrum hléum og ýmsum mannabreytingum, en ávallt við miklar vinsældir meðal ungra sem aldinna sem þyrpst hafi á ótal hljómleika Hjálmanna eða sótt í hljómdiska þeirra sem orðnir eru sex talsins.
„Frá upphafi hefur það verið eins og sjálfsagt mál að allir söngtextar sem
frá Hjálmum koma séu á íslensku. Þannig hafa þeir lagt fram drjúgan skerf til að byggja upp þá ímynd að meðal framsækinna íslenskra rokk- og dægurtónlistarmanna sé íslenska sjálfsagt mál, eða ætti að vera það, þó alltof margir aðrir virðist af einhverjum ástæðum þeirrar skoðunar að enskan ein hæfi slíkri tónlist," segir í rökstuðningnum.
Viðurkenningarhafar fengu listaverk eftir Brynhildi Þorgeirsdóttur. Í ráðgjafarnefnd um verðlaun og viðurkenningar á degi íslenskrar tungu sitja Kristín Helga Gunnarsdóttir, Kristján Árnason og Þórarinn Eldjárn.