Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu á borgarstjórnarfundi í dag fram tillögu um að að endurtaka atkvæðagreiðslu íbúa vegna ákveðinna hverfaverkefna í fjárhagsáætlun, líkt og gert var með góðum árangri í byrjun árs 2010, samkvæmt fréttatilkyninngu frá Sjálfstæðisflokknum.
Tillögunni er ætlað að fjölga tækifærum íbúa til að koma beint að ákvörðunum á vettvangi borgarstjórnar, auk þess sem með slíku verkefni er tryggt að takmarkað fjármagn borgarinnar nýtist sem best í þágu íbúa og hverfanna, en hún hljóðar svo orðrétt:
„Borgarstjórn samþykkir að endurtaka tækifæri íbúa til beinnar aðkomu að forgangsröðun verkefna i fjárhagsáætlun, líkt og gert var með góðum árangri í fjáhagsáætlunarvinnu yfirstandandi árs. Þannig fái íbúar tækifæri til að greiða atkvæði um útgjaldaliði er tengjast framkvæmdum í þeirra hverfi, auk þess sem tryggt er að takmarkað fjármagn nýtist hverfunum og íbúum þeirra sem best. Borgarstjórn felur skrifstofu borgarstjóra opnun sérstaks vefsvæðis vegna verkefnisins og óskar eftir áframhaldandi samstarfi við Háskóla Íslands um framkvæmdina þannig að íbúar geti tekið þátt í atkvæðagreiðslunni á meðan umræða um fjárhagsáætlun fer fram i borgarstjórn í desember. Að auki felur borgarstjórn sömu aðilum að útfæra tillögur um enn frekari tækifæri almenning til aðkomu að fjárhagsáætlanagerð í framtíðinni.
Hanna Birna Kristjánsdóttir sagði í ræðu sinni frá árangri þessa verkefnis fyrir ári síðan og þeim undirtektum sem kosningin hlaut meðal borgarbúa, en um 6000 íbúar tóku þátt í því að velja forgangsröðun verkefna í sínu hverfi. Hanna Birna hvatti borgarstjórn til að halda áfram að vinna að því að gefa íbúum sem flest og best tækifærti til aðkomu og þáttöku, um leið og sagði mikilvægt að innleiða virkara íbúalýðræði í borginni ,, Það hefur sýnt sig að íbúar hafa mikinn áhuga á því að hafa áhrif á sitt nærumhverfi. Það er hlutverk okkar í borgarstjórn að bregðast við þeirri kröfu og innleiða ný vinnubrögð þar sem íbúar hafa aukin áhrif á ákvarðanatöku,” segir í fréttatilkynningu sem borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins hefur sent frá sér.