Heilbrigðisráðherra hefur heimilað Heilbrigðisstofnun Suðurnesja að leigja út skurðstofur HSS, að því er kemur fram í Víkurfréttum. Við munum nú leita allra leiða til að finna leigjendur að skurðstofuaðstöðunni hjá okkur en auðvitað er mikil vinna framundan í því að skoða samkomulagsgrundvöll og vernda hagsmuni,“ segir Sigríður Snæbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, við blaðið.
Sigríður segir við Víkurfréttir, að sérstaða skurðstofunnar sé sú að hægt sé að „leigja út“ sjúkrarými fyrir aðgerðir sem ekki sé hægt að gera á læknastöðvum úi í bæ.
„Ég og fleiri höfum átt samskipti við núverandi heilbrigðisráðherra um þó nokkra hríð varðandi skurðstofurnar. Hann hefur sýnt málinu mikinn skilning. Við höfum líka háð harða varnarbaráttu um fullkomið skurðborð sem við höfum ekki verið tilbúin að láta frá okkur, eðlilega, en Landspítalinn hefur barist fyrir því að fá það yfir til sín. Nú hefur heilbrigðisráðherra gefið grænt ljós á að kanna með útleigu á skurðstofunum hjá okkur og um leið er útilokað að við setjum skurðborðið frá okkur,“ sagði Sigríður við Víkurfréttir.