Jóhanna farin á NATO fund

Jóhanna Sigurðardóttir
Jóhanna Sigurðardóttir mbl.is/Árni Sæberg

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra fór utan í dag vegna þátttöku í leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins, sem að þessu sinni er haldinn í Lissabon í Portúgal. Fundurinn hefst á morgun og stendur fram á laugardag.

Meginefni fundar leiðtogaráðsins verður ný grundvallarstefna Atlantshafsbandalagsins og áherslur. Einnig verður fundur í NATO-Rússlands ráðinu, svo og fundur leiðtoga þeirra 50 ríkja sem taka þátt í alþjóðlegum öryggis- og uppbyggingarsveitum í Afganistan (ISAF).

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert