„Landssamband lögreglumanna (LL) fagnar framkominni þingsályktunartillögu, á Alþingi Íslendinga, sem miðar að því að rannsakaður verði meintur þáttur þjóðkjörinna þingmanna í svokallaðri „Búsáhaldabyltingu“,“ segir í ályktun frá landssambandinu.
Einnig segir í ályktuninni að það sé fagnaðarefni að þessi kafli í óeirðunum við Alþingishúsið verði gerður upp í slíkri rannsókn. Þá verði einstaklingar hreinsaðir af ávirðingum, séu þær ekki á rökum reistar.
„Það er með öllu ólíðandi, sé einhver fótur fyrir þeim fréttaflutningi, sem af málinu hefur verið, að þjóðkjörnir fulltrúar á Alþingi Íslendinga skuli hugsanlega hafa stuðlað að árásum á sjálft Alþingi. Árásum sem orsökuðu líkamstjón bæði lögreglumanna og starfsmanna Alþingis. Slíkar athafnir, séu þær á rökum reistar, eru bein árás á það þjóðskipulag sem hér ríkir,“ eru lokaorð ályktunarinnar sem undirrituð er af Snorra Magnússyni, formanni LL.