Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra, sem er stödd á leiðtogafundi NATO í Portúgal, lýsti yfir sérstakri ánægju með aukna áherslu á pólitískt samráð og eflingu borgaralegrar uppbyggingar innan bandalagsins. En því er ætlað að endurspegla heildstæða nálgun í verkefnum og aðgerðum bandalagsins.
Fram kemur á vef forsætisráðuneytisins að í yfirlýsingu fundarins hafi sérstaklega verið vísað í ákvæði
ályktunar öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr. 1325 frá 2000 um konur, frið og öryggi, sem
verið hafi áherslumál af hálfu Íslands.
Þá segir að leiðtogaráð NATO hafi samþykkt nýja grundvallarstefnu bandalagsins, sem unnið hafi verið að síðasta ár. Stefnunni sé ætlað að gera störf NATO markvissari, hagkvæmari og auka samvinnu við alþjóðastofnanir og ríki utan bandalagsins.
Segir að framkvæmdastjóri NATO, Anders Fogh Rasmussen, hafi unnið tillögur sínar að nýrri grundvallarstefnu meðal annars á grunni skýrslu sérfræðinganefndar sem hafi skilað tillögum í maí s.l. Mikið og öflugt samráð hafi verið við öll bandalagsríkin í ferlinu og náðist góð sátt um niðurstöðurnar.
Áherslur Íslands hafi verið endurspeglaðar í texta grundvallarstefnunnar, meðal annars aukin samvinna við borgaralegar alþjóðastofnanir og samstarfsríki. Efni grundvallarstefnunnar hafði verið kynnt utanríkismálanefnd Alþingis af utanríkisráðherra fyrir leiðtogafundinn
Þá kemur fram að fundur hafi farið fram í NATO-Rússlandsráðinu þar sem NATO-leiðtogarnir 28 funduðu með forseta Rússlands, Dimítrí Medvedev, og lýsti forsætisráðherra á þeim fundi ánægju sinni með aukið samstarf bandalagsins við Rússa. Ætlunin sé að samstarfið muni meðal annars varða uppsetningu eldflaugakerfis NATO í Evrópu.
Fundur þeirra 50 ríkja sem taka þátt í alþjóðlegum öryggis- og uppbyggingarsveitum í Afganistan (ISAF), var einnig hluti af dagskrá leiðtogafundarins. Forseti Afganistan, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna auk fleiri forystumanna úr alþjóðasamfélagi, sóttu fundinn. Skýr stefna hefur verið tekin um að næstu árin verði yfirfærsla ábyrgðar frá ISAF þjóðunum til Afgana sjálfra þar sem þeir taki forystu í eigin öryggismálum. Jafnframt var gengið frá samkomulagi um samstarf til lengri tíma milli NATO og Afganistan til að Afganir sjálfir geti tryggt eigið öryggi og byggt upp innviði samfélagsins, bæði hvað varðar her og lögreglu.
Ísland tekur þátt í verkefni ISAF í Afganistan og starfa nú fimm starfsmenn fyrir íslensku friðargæsluna í Kabúl, auk þess sem tveir íslenskir starfsmenn starfa fyrir verkefni Sameinuðu þjóðanna í Afganistan.