Bæjarstjórn Garðabæjar hefur samþykkt að taka 400 milljóna króna lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga til að fjármagna kaup á 1. áfanga byggingu Sjálandsskóla. Er lánið til 14 ára.
Þetta var samþykkt á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar fyrir helgi. Segir í fundargerð að fjárhæð lánsins breytist í samræmi við breytingar á vísitölu neysluverðs til verðtryggingar og ber 4,1% fasta vexti allan lánstímann.