Dómsmála- og mannréttindaráðuneytinu hafa að undanförnu borist fyrirspurnir frá útlöndum þar sem vísað er til sögusagna um að á Íslandi hafi verið samþykktar nýjar reglur um að mögulegt sé fyrir útlendinga að kaupa íslenskan ríkisborgararétt án þess að búa hér á landi eða vera af íslenskum uppruna. Áréttar ráðuneytið að engar slíkar reglur hafi verið settar hér.
„Vísað er til þess að Ísland hafi tekið upp svokallað Economic Investment Citizenship Programme sem í felist öll þau réttindi sem fylgja íslenskum ríkisborgararétti. Meðal þeirra réttinda er skilyrðislaus landvistarréttur, réttur á vernd íslenska ríkisins hvar sem dvalið er í heiminum og öll þau réttindi sem íslensk stjórnvöld hafa tryggt þegnum sínum með samningum við önnur ríki.
Í tilefni af þessum fyrirspurnum vill ráðuneytið árétta að engar breytingar hafa verið gerðar á löggjöf í þessa veru. Ráðuneytið hefur ekki áform um að leggja til slíkar breytingar þar sem vikið verði frá almennum skilyrðum laga um íslenskan ríkisborgararétt gegn greiðslu eða vegna viðskiptalegra sjónarmiða," segir í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu.