Lögregla höfuðborgarsvæðisins fékk í kvöld beiðni um aðstoð frá manni sem hafði lokast inni í Gufunesskirkjugarði. Loka á kirkjugarðinum klukkan 21.00 á kvöldin. Ekki er ljóst hvort garðinum var lokað of snemma eða hvort maðurinn var aðeins of seinn, en víst er að hann komst ekki út úr garðinum.
Lögreglan fór á staðinn og öryggisvörður kom og hleypti manninum, sem var á bíl, út úr kirkjugarðinum.