Verð á bifreiðum mun breytast verulega, verði frumvarp um breytingar á lögum um bifreiðagjald og lögum um vörugjöld á ökutækjum og eldsneyti samþykkt á Alþingi, en frumvarpinu var dreift á dögunum.
Líkt og sjá má í töflunni hér til hliðar koma þær breytingar mjög misjafnlega út eftir stærð og gerð bílsins, en breytingarnar ná til ökutækja sem nýskráð eru eftir gildistöku laganna.
Samkvæmt frumvarpinu verður miðað við losun gróðurhúsalofttegunda við álagningu vörugjalda, en ekki stærð vélar og þyngd ökutækisins, eins og verið hefur. Tillögurnar byggjast á skýrslu starfshóps fjármálaráðuneytins, sem kom út árið 2008. Ætlunin er að hvetja til aukinnar notkunar vistvænna ökutækja, en viðhalda á sama tíma tekjustofni ríkissjóðs. Fyrirhugað er að lögin verði endurskoðuð innan nokkurra ára en örar tækniframfararir, sem stuðla að minni losun, kæmu annars til með að rýra tekjur ríkissjóðs.
Þannig er ekkert vörugjald lagt á ökutæki sem losar á bilinu 0-80 g/km, en af ökutæki sem losar yfir 250 g/km hækkar vörugjaldið úr 45% í 65%. Það er því ljóst að verðmunur á ökutækjum mun aukast verulega, verði frumvarpið að lögum. Ýmsar gerðir ökutækja verða þó undanskildar vörugjaldi, til að mynda dráttarvélar, slökkvi- og sjúkrabifreiðar og ökutæki í eigu hjálparsveita. Á ýmsum öðrum flokkum verða vörugjöld 13 eða 30%.
Hin mikla vörugjaldahækkun geri það að verkum að bílar af þessu tagi verði einfaldlega of dýrir. Fólk muni veigra sér við að kaupa nýja bíla. Eldri bílafloti sé bæði óöruggari og mengi meira, því skili lagabreytingin í raun ekki því sem til er ætlast.
Özur Lárusson, framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins, segir fulltrúa sambandsins hafa fundað með efnahags- og skattanefnd vegna frumvarpsins og segist vona að tekið verði tillit til athugasemda sambandsins. Hann segir að vörugjaldsbreytingarnar, sem boðaðar eru, séu mun meiri en í skýrslu starfshópsins sem sambandið hafi verið búið að „sætta sig við“. BGS hefur lagt til annað vörugjaldakerfi, sem tekur mið af þeim þáttum sem starfshópurinn vann 2008 og hljóðar upp á lægra gjald en í frumvarpinu.
Hann segir marga vera í þeirri stöðu að þurfa hreinlega að eiga öfluga og örugga bíla. „Þeir þurfa að geta tekist á við misjafnar aðstæður í samgöngum, jafnt vegi og veðurfar. Það eru bara stærri jeppar sem klára það. En þeir eru bara verðlagðir út úr korti í þessu nýja frumvarpi.“