Hópuppsögn í Þorlákshöfn

Frá humarvinnslu í Þorlákshöfn.
Frá humarvinnslu í Þorlákshöfn. Helgi Bjarnason

Flestum starfsmönnum í landvinnslu útgerðanna Auðbjargar ehf. og Atlantshumars ehf. í Þorlákshöfn hefur verið sagt upp. Alls missa um 40 manns vinnuna. Starfsmönnum var tilkynnt um ákvörðunina á fundi í gær. Að sögn Guðbjartar Arnar Einarssonar útgerðarstjóra neyðist stjórnin til að grípa til þessara aðgerða í ljósi þess að humarvertíð lýkur í nóvemberlok, eftir 8 mánaða tímabil, og vegna fyrirsjáanleg verkefnaskorts og versnandi rekstrarskilyrða.

Það megi rekja til þess að mikill niðurskurður hafi orðið á bolfisk- og flatfiskheimildum sem hafi víðtæk áhrif á starfsemina og minnkandi hráefni til vinnslu. Fyrirtækin hafa verið í humarvinnslu og einnig í saltfisk- og flakavinnslu og fengið hráefni bæði af eigin skipum og af fiskmörkuðum. Tveimur af fjórum skipum fyrirtækjanna verður lagt nú í lok humarvertíðar í ljósi þess að verkefnastaðan er engin.

„Það er öllum ljóst, sem vilja vita, að allt of lítið framboð er á fiski á Íslandi í dag og verðið á fiskmörkuðum af þeim völdum mjög hátt," segir Guðbjartur. „Eins er ekki hægt að leigja til sín kvóta þar sem allir eiga nóg með sig. Á meðan stjórnvöld vilja ekki auka kvótann og hleypa meira lífi í iðnaðinn þá er allt nánast frosið í greininni. Og til að bæta gráu ofan í svart þá þarf sjávarútvegurinn að lifa við stanslausar hótanir ríkisstjórnarinnar um að breytingar á kvótakerfinu  sem myndu kippa rekstrargrundvellinum endanlega undan fyrirtækjunum. Það er þá ekkert annað í stöðunni en að draga saman seglin og bíða og sjá til hvort rofi til á ný."

Auðbjörg ehf. er rótgróið fyrirtæki, sem hefur starfað í Þorlákshöfn í 39 ár og að mestu einbeitt sér að útgerð og saltfiskvinnslu. Atlantshumar er 3 ára gamalt fyrirtæki, áður Humarvinnslan, sem er í eigu Auðbjargar og sérhæfir sig í vinnslu humars, en auk þess stundað flakavinnslu og flatfiskvinnslu til að skjóta stoðum undir reksturinn. Hjá Auðbjörgu og Atlantshumar hafa samanlagt starfað á bilinu 80-120 manns til sjós og lands. Fyrirtækin eru meðal stærstu vinnuveitenda í Þorlákshöfn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert