Í dag er opið í Bláfjöllum kl. 10-17. Núna kl. 8:20 er blankalogn og heiðskýrt og -7°. Spáð er mjög góðu veðri í dag.
Kl. 11-15 er boðið uppá fría skíðakennslu fyrir byrjendur við Bláfjallaskála. Veitingasala og skíðaleiga eru á staðnum og miðasala fer fram á N1 Ártúnsbrekku ásamt Bláfjallaskála.
Starfsfólk í Bláfjöllum minnir á vetrarkortin sem eru á tilboðsverði til 5. janúar 2011. Í dag er 13 dagur í opnun þennan veturinn og enn er bara nóvember.